Enski boltinn

Raggi Sig: Oft hugsað hvað það væri geðveikt að skora með hjólhestaspyrnu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ragnar Sigurðsson, miðvörður Fulham og íslenska landsliðsins í fótbolta, fékk heimsókn frá Messunni á dögunum en brot úr viðtali Gumma Ben við Ragnar var sýnt í þættinum á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi.

Ragnar var eftirsóttur eftir EM í Frakklandi í sumar þar sem Árbæingurinn spilaði frábærlega og var maður leiksins í tveimur af fimm leikjum Íslands á mótinu. Hann endaði hjá Fulham í ensku B-deildinni og var spurður hvernig það væri að labba út á völl í enska boltanum fyrir framan fullt hús.

„Það er frábær tilfinning. Maður tengir þetta við þegar maður var lítill strákur og sá þetta gerast í sjónvarpinu. Mig dreymdi alltaf um þetta. Ég nýt þess alveg í botn að labba út á svona völl sem er fullur af fólki,“ segir Ragnar sem hefur lengi átt sér þann draum að spila í ensku úrvalsdeildinni.

„Það var alltaf að spila með einverju af þessum toppliðum en núna er draumurinn að fara upp með Fulham og spila með þeim í úrvalsdeildinni. Ég ætla allavega að reyna að gefast ekki upp á því. Það er enn þá markmiðið þó að ég sé orðinn hund gamall. Núverandi markmið mitt er að fara upp með Fulham en hlutirnir breytast mjög hratt,“ segir Ragnar.

Miðvörðurinn magnaði var hársbreidd frá því að skora flottasta markið á EM í sumar þegar hann reyndi hjólhestaspyrnu af stuttu færi í frægum leik strákanna okkar gegn Englandi í Hreiðrinu í Nice í 16 liða úrslitum mótsins. Gummi Ben spurði Ragnar hvort það mætti búast við svona marki fyrir Fulham.

„Ég held að það ætti enginn að búast við því en ef ég fæ tækifæri til þess að reyna þetta aftur mun ég gera það,“ segir hann.

„Ég hef oft hugsað um hvað það væri geðveikt að skora með hjólhestaspyrnu í leik. Ég hafði ekki reynt þetta síðan ég var lítill en þetta var það eina í stöðunni þarna. Ég tók bara hjólhestaspyrnu. Það er bara fáránlegt að boltinn fór ekki inn,“ segir Ragnar Sigurðsson.

Allt innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×