Rafrænar undirritanir orðnar að veruleika Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. maí 2015 14:37 Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, telur rafrænar undirskriftir geta breytt daglegu lífi Íslendinga. Fréttablaðið/Pjetur
Advania hefur sett á markað nýja lausn á vefnum sem kallast Signet en hún gerir einstaklingum og fyrirtækjum mögulegt að undirrita skjöl rafrænt hvar og hvenær sem er. Þetta kemur fram í tilkynningu. „Allt sem þarf er að skjalið sé á PDF formi, að undirritendur séu nettengdir og með rafræn skilríki.” Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir lausnina skapa mikinn ávinning fyrir atvinnulífið. „Með rafrænum undirritunum með Signet geta fyrirtæki stigið stór skref í áttina að því að gera öll samskipti og viðskipti rafræn,“ skrifar hann í tilkynningunni. Þar er bent á að með rafrænum undirritunum verði engin þörf á að hafa samninga eða önnur mikilvæg skjöl á pappírsformi. „Það má búast við að það verði mun auðveldara og hraðvirkara en áður að ganga frá viðskiptum við þjónustufyrirtæki enda hægt að undirrita skjöl heima við ef svo ber undir. Þetta mun spara mörgum sporin í daglegu amstri.“ Í tilkynningunni kemur fram að skjöl sem má undirrita með þessum hætti séu til dæmis allir almennir samningar, fundargerðir, lánasamningar, eignaskiptayfirlýsingar og kaupmálar. „Signet nýtir rafræn skilríki frá Auðkenni. Undirritanir sem gerðar eru með Signet standast kröfur laga nr 28/2001 til fullgildra rafrænna undirritana og eru því lagalega séð jafngildar hefðbundinni undirritun með penna. Skjöl sem eru undirrituð með Signet eru með langtíma undirritun, sem þýðir að undirritunin inniheldur vottaða tímasetningu og staðfestingu á að rafrænu skilríkin sem beitt var voru gild þegar undirritunin var framkvæmd. Tímasetning undirritunar og hverjir það eru sem undirrita er vottað. Signet virkar ennfremur þannig að notendur geta aðeins séð sín skjöl.”
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira