Skoðun

Rafmynt er ekki ólögleg á Íslandi

Hilmar Jónsson skrifar
Hvort kemur á undan, hænan eða hænsnabúrið?

Rafmynt (e. Cryptocurrency) hefur verið mikið í umræðunni hjá löggjafarvaldinu í heiminum upp á síðkastið. Umræðan hefur snúist um hvort og hvernig eigi að búa til lög um rafmyntina og hvort einhver lög sem séu nú þegar til staðar gildi um hana.

Nýtt fyrirbæri

Greinarhöfundur álítur rafmyntina vera nýtt fyrirbæri sem þurfi að laga lögin að. Ef upp kæmi dómsmál um rafmynt á Íslandi og dæmt væri eftir núverandi kerfi gæti tekið langan tíma að laga fordæmi sem það myndi gefa. Þannig gæti rafmynt orðið gjörsamlega ónothæf þangað til heildarlög koma á Íslandi.

Seðlabanki Íslands segir bíddu

Í yfirlýsingu sem Seðlabanki Íslands sendi frá sér um rafmynt er tekið fram að verið sé að vinna að lausn á lagalegri óvissu á vettvangi ESB. Sú lausn myndi felast í breytingum á samevrópsku regluverki. Þetta þýðir það að rafmynt fengi sennilega sömu stöðu hér og í ESB. Seðlabanki Íslands er þannig búinn að gefa út að hann ætli ekki að eiga frumkvæði að því að búa til reglur um rafmynt á Íslandi.

Ekkert ólöglegt við rafmynt

Yfirlýsingar Seðlabankans vara við viðskiptum með rafmynt vegna gengisáhættu og skorti á lagalegri vernd neytenda. Á Íslandi er hins vegar löglegt að kaupa, selja og gefa rafmynt að vild en gjaldeyrishöftin takmarka flutning á eignum á milli landa og þannig viðskipti með rafmynt á milli landa. Þannig má í dag versla með rafmynt innan landssteinanna og nota sem greiðslumiðil að vild.

Íslensk sprotafyrirtæki í vanda

Nokkur íslensk frumkvöðlafyrirtæki vinna með rafmynt. Í sumum tilvikum bindur lagalega óvissan þessi fyrirtæki. Einhver þeirra hafa íhugað að skrá sig erlendis en eitt þeirra er nú þegar farið. Rafmyntin er ný tækni og vinna með hana á heima í sprotafyrirtækjum sem geta aðlagað sig hratt að kerfi sem er í stöðugri þróun. Rafmyntin hefur marga kosti umfram hefðbundna gjaldmiðla og það er hugsanlegt að bitcoin, sem er mest notaða rafmyntin, sé gjaldmiðill framtíðarinnar. Þannig er nauðsynlegt að fyrirtæki fái frelsi til að vinna með hana strax og prófa sig áfram.

Dell, Newegg og Overstock taka öll við bitcoin

Bitcoin er kominn á annað stig erlendis. Stórfyrirtæki eru byrjuð að taka við greiðslum í bitcoin en þau gefa jafnvel afslætti gegn því að greiða með rafmynt. Ísland situr eftir því umræðan hér hefur verið neikvæðari en annars staðar sem hefur latt marga til að stofna fyrirtæki hér.

Hænsnabúrið er ekki komið

Við erum heppin að búa á Íslandi. Við lifum í samfélagi þar sem allt sem er ekki bannað er leyft. Það var skotið af byssu á Íslandi áður en það var til bókstafur í lögum um það. Bíllinn var fluttur til landsins áður en umferðareglurnar komu og menn byrjuðu að hjóla áður en hjálmurinn varð að skyldu. Á sama hátt er rafmyntin notuð í dag á meðan við bíðum eftir reglum. Við ættum bara að muna að í þessu umhverfi er mikilvægt að vanda sig og taka upp góðar venjur til að hvetja til heilbrigðrar lagasetningar í framtíðinni.




Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×