Innlent

Rafmagnstruflanir víða á Vesturlandi í kvöld

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Unnið er að viðgerðum.
Unnið er að viðgerðum. vísir/gva
Rafmagnstruflanir hafa verið á Vesturlandi í kvöld. Rafmagn fór af í Dalabyggð rétt fyrir klukkan 18.50 og hefur verið unnið að bilun síðan. Þetta kemur fram í tilkynningum frá Rarik.

Rafmagn komst aftur á í Búðardal og Saurbæjarlínu um klukkan 19.20 og að Álfheimum frá Búðardal og frá Stykkishólmi að Gunnarsstöðum um klukkan 19.45. Unnið er að bilanaleit og frekari viðgerðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×