Bílar

Rafbíll ferðaðist 2500 kílómetra fyrir 2000 krónur

T-1 er þessa dagana á bílasýningu í Tyrklandi
T-1 er þessa dagana á bílasýningu í Tyrklandi
Tyrkneskur rafbíll ferðaðist á dögunum 2500 kílómetra leið fyrir einungis 37.5 tyrkneskar lírur eða rétt rúmar 2000 íslenskar krónur. Ferðin hófst 15. september síðastliðinn og lá leiðin í gegnum sex tyrkneskar borgir.

Bíllinn er kallaður T-1 en hann var hannaður og smíðaður af starfsfólki og nemum við háskólann í Istanbúl.

T-1 kemst að meðaltali 500 kílómetra leið á fjögurra klukkustunda hleðslu.

Ferð bílsins lauk á mánudag en þá hafði hann keyrt í gegnum Ankara, SamsunTrabzon, erzurum, Diyarbakir og Gaziantep áður en hann hélt til Kayezeri þar sem  gestur og gangandi fá að berja hann augum næstu daga.

T-1 vegur um 500 kíló og getur náð allt að 130 kílómetra hraða á klukkustund. För bílsins hefur vakið töluverða athygli þar í landi en þó verður að teljast ólíklegt að hann verði fjöldaframleiddur. Smíði bílsins var bæði tímafrek og kostnaðarsöm – ferlið tók alls um eitt og hálft ár og kostaði rúmlega 24 milljónir króna.

Þrátt fyrir það er T-1, eins og hér hefur verið drepið á, tiltölulega ódýr í rekstri en eldsneytiskostnaðurinn fyrir 500 kílómetra akstur nemur einungis 3.75 prósentum af kostnaðinum sem hlýst af því að aka venjulegum fjölskyldubíl sömu leið.

Eftir að bílasýningunni lýkur mun T-1 verða ekið aftur til Istanbúl þar sem á honum verða unnar endurbætur og grunnur lagður að næstu útgáfu bílsins. 






×