Viðskipti erlent

Rafbækur hafa ekki mikil áhrif á útgáfu bóka

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sextíu og fimm prósent Bandaríkjamanna höfðu lesið bók í prentformi á síðasta ári samkvæmt rannsókninni.
Sextíu og fimm prósent Bandaríkjamanna höfðu lesið bók í prentformi á síðasta ári samkvæmt rannsókninni. vísir/getty
Undanfarinn áratug hafa stafrænar vörur og efnisveitur leyst hefðbundnar vörur af hólmi. Má þar nefna efnisveitur fyrir tónlist og kvikmyndir í stað geisladiska og DVD-diska, sú þróun virðist þó ekki vera að eiga sér stað þegar kemur að bókum, ef marka má nýja bandaríska rannsókn.

Ný rannsókn Pew Research sýnir að á síðasta ári lásu 65 prósent Bandaríkjamanna bók á prentformi en einungis 28 prósent lásu rafbók.

Svo virðist sem neytendur vilji enn þá þreifa á prentuðum blaðsíðum við lestur bóka. Þetta gæti útskýrt áframhaldandi sölu hjá bandarískum bóksölum þrátt fyrir lægra verð á rafbókum. Frá 2011 til 2014 jókst lestur á rafbókum úr sautján í tuttugu og átta prósent, hins vegar hefur engin aukning orðið síðan þá. Aukinn aðgangur að ódýrari rafbókum virðist ekki heldur hafa ýtt undir meiri lestur hjá Bandaríkjamönnum.

Í grein Business Insider um málið eru færð rök fyrir því að ef til vill hafi rafbækur ekki drepið markaðinn fyrir hefðbundnar bækur einmitt vegna þess að Bandaríkjamenn lesi ekki margar bækur á ári til að byrja með, eða um fjórar á ári. Því skipti lægra verð á rafbókum minna máli en lægra verð á tónlist og kvikmyndum með efnisveitum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×