Rafael van der Vaart hefur ekki hug á því að fara frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham. Hinn 29 ára gamli hollenski landsliðsmaður hefur verið sterklega orðaður við mörg félög í Evrópu en hann segir sjálfur að hann vilji vera áfram í herbúðum Tottenham.
„Ég vil vinna titil með Tottenham og mér líður vel hérna. Baráttan um fjögur efstu sætin í deildinni byrjar á fyrsta keppnisdegi," sagði leikmaðurinn við enska fjölmiðla. Van der Vaart kom til Tottenham fyrir tveimur árum frá Real Madrid á Spáni. Andre Villas-Boas tók nýverið við knattspyrnustjórastöðunni hjá Tottenham og er van der Vaart sannfærður um að Portúgalinn muni nota hann mikið á næstu leiktíð.
„Villas-Boas hefur sett upp góða áætlun fyrir næsta tímabil og það er mikilvægt að finna traust frá honum. Sóknarleikur okkar gæti verið góður á næstu leiktíð," sagði Rafael van der Vaart en Gylfi Þór Sigurðsson mun leika með Tottenham á næstu leiktíð en íslenski landsliðsmaðurinn gerði fimm ára samning við Tottenham á dögunum.