Sport

Rafael Nadal: Ég er algjörlega hreinn gæi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal.
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal. Vísir/Getty
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal segist aldrei hafa notað ólöglegt efni til þess að hjálpa sér inn á tennisvellinum. Spánverjinn var spurður út í lyfjamál í kjölfarið á því að lyfjahneyksli rússnesku tenniskonunnar Mariu Sharapovu sem er eitt stærsta íþróttamál heimsins þessa dagana.

Nadal segist vera orðinn þreyttur á orðróminum um að hann hafi freistast til þess að nota ölögleg lyf.

„Ég er algjörlega hreinn gæi. Ég hef aldrei freistast til þess að gera eitthvað rangt," sagði Rafael Nadal í viðtali við BBC og bætti við:

„Ég trúi á íþróttirnar og hinn rétta íþróttaanda," sagði Rafael Nadal. Nadal hefur aldrei fallið á lyfjaprófi en hefur samt ekki losnað við sögusagnirnar.

„Íþróttin er fyrirmynd fyrir samfélagið. Við erum fyrirmyndir krakkanna og ef ég væri að gera eitthvað sem stangast á við það þá væri ég að ljúga að sjálfum mér en ekki að mótherjunum mínum," sagði Nadal.

Yannick Noah gekk mjög langt árið 2011 þegar hann skrifaði blaðagrein þar sem hann hélt því fram að árangur Nadal væri kominn til vegna ólöglegra lyfja.

Rafael Nadal hefur breitt óhefðbundnum lækningaraðferðum til að hjálpa sér með hnémeiðsli sín en segir að allt sér gert fyrir opnum dyrum.

„Ég hef aldrei reynt að fela neitt. Læknirinn minn hefur verið með alla spænsku spilarana í mörg ár. Ég myndi aldrei taka annað inn en það sem hann er sáttur með," sagði Nadal.

Rafael Nadal var einnig fenginn til að segja sitt álit á máli Mariu Sharapovu.

„Það er erfitt að sjá fyrir sér að svona geti gerst en fólk gerir mistök. Ég trúi því að Maria hafi gert mistök. Hún vildi ekki gera þetta en auðvitað er þetta gáleysi. Hún verður að taka út sína refsingu," sagði Nadal.


Tengdar fréttir

Sharapova fékk fimm viðvaranir

Tók inn lyf í áratug sem fór á bannlista á áramótin. Sharapova féll á lyfjaprófi nokkrum vikum síðar.

Tennisdrottning hrynur af stalli

Tekjuhæsta íþróttakona heims undanfarin ellefu ár féll á lyfjaprófi. Ber við sig kæruleysi en gengst við brotum sínum. Gæti fengið allt að fjögurra ára bann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×