Glamour

Raf Simons endurhannar Calvin Klein merkið

Ritstjórn skrifar
Við höfum þekkt Calvin Klein í þessari skrift seinustu áratugi.
Við höfum þekkt Calvin Klein í þessari skrift seinustu áratugi. Mynd/Calvin Klein
Raf Simons tók við sem yfirhönnuður Calvin Klein á seinasta ári og það virðist sem ætlar að láta til sín taka. Hann hefur, í samstarfi við grafíska hönnuðinn Peter Saville, hannað nýtt merki fyrir tískuhúsið. 

Gamla „logo-ið“ hefur haldist óbreytt seinustu ár. Samkvæmt tilkynningu frá Calvin Klein munu þessar breytingar tákna breytta tíma hjá merkinu á meðan haldið er í við ræturnar. 

Raf mun sýna sína fyrstu línu fyrir Calvin Klein þann 10.febrúar en það er mikil eftirvænting eftir henni. Hann er með nútímalegar og minimalískan stíl sem á einhvern hátt hann nær að gera á einstakan hátt. Það verður spennandi að fylgjast með í hvaða stefnu Raf mun fara með Calvin Klein. Hægt er að sjá nýja merkið hér fyrir neðan.






×