Innlent

Ræningjans í Kópavogi enn leitað

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ránið var framið í Bílaapótekinu í Kópavogi.
Ránið var framið í Bílaapótekinu í Kópavogi. mynd/loftmyndir/ja.is
Lögreglan í kópavogi leitar enn manns sem framdi vopnað rán í Bílaapótekinu við Hæðasmára 4 í Kópavogi síðdegis í gær. Maðurinn kom inn í apótekið vopnaður hnífi og ógnaði starfsfólki. Hann komst undan með einhverja fjármuni og lyf, að sögn lögreglu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sakaði engan og ekki er talið að neinar skemmdir hafi verið unnar. Lögreglan rannsakar nú málið en gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×