Innlent

Rændu handtöskum af erlendum ferðamanni og konu

Vísir/HARI
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá drengi á aldrinum 15-18 ára á öðrum tímanum í nótt. Höfðu þeir stolið handtösku af erlendum ferðamanni á Hverfisgötu. Drengirnir voru í mjög annarlegu ástandi samkvæmt tilkynningu lögreglu.

Voru þeir vistaðir í fangageymslu að höfðu samráði við Barnavern. Í þann mynd sem verið var að vista drengina var tilkynnt um annað rán, nú á Skúlagötu, þar sem handtösku hafði verið rænt af konu. Reyndist taskan sú einnig í fórum drengjanna.

Þá féll kona utandyra í miðbænum rétt fyrir klukkan fimm og handleggsbrotnaði. Var hún flutt á slysadeild. Þá var nokkuð um að lausir hlutir fuku til í vindinum í morgun t.d. auglýsingaskilti á Granda og í Skeifunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×