Rækjuveiði lítil og kvóti verðlaus 31. ágúst 2004 00:01 "
Veiðin hér er svo lítil, það veiðist bara ekki rækja hér nema í mjög takmörkuðu magni. Það segir sig sjálft að þegar olíulítrarnir sem þarf að nota eru fleiri en kílóin sem koma í land þá stendur veiðin ekki undir sér," segir Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf. Yfirmönnum á rækjuveiðiskipunum Stálvík og Sólbergi hefur þess vegna verið sagt upp störfum. Ólafur segir fyrirtækið endilega vilja nýta þann rækjukvóta sem það á en því miður séu ekki forsendur fyrir því eins og staðan er núna. Veiðin er léleg og olíuverðið hátt. Eitthvað verði að breytast svo Stálvík og Sólberg verði áfram gerð út á rækju. Ákveðið hefur verið að eitt rækjuveiðiskipa Þormóðs ramma hætti að veiða rækju eftir nokkra mánuði og stendur til að skipið fari á bolfiskveiðar. Ólafur segir fyrirtækið eiga tæplega 3.000 tonna kvóta. Í dag hefst nýtt kvótaár og ekki hefur tekist að veiða nærri allan kvótann. Aflinn hafi aðeins verið rétt um 1100 tonn. Ólafur segir enga kaupendur vera að rækjukvótanum og því sé hann verðlaus. Aðrir útgerðarmenn geti ekki heldur búið til peninga á rækjuveiðum eins og staðan er. Eina sem hægt sé að gera er að bíða og sjá hvort ástandið lagist ekki. Þormóður rammi kaupir mikið magn af rækju frá útlöndum að sögn Ólafs, helst frá Grænlandi, Noregi, Eystrasaltslöndunum og Kanada. "Við erum að vinna um tíu þúsund tonn á ári og aðeins þriðjungur hefur verið að koma frá okkar skipum," segir Ólafur. Jafnframt segir hann að þó að útlit sé fyrir að veiðunum verði hætt á næstunni eigi það ekki að koma niður á vinnslunni. Núna sé ekkert sem bendi til þess en enginn viti þó hvað framtíðin beri í skauti sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira