Ræður ríkissjóður við allar þessar niðurfærslur?

Vísir Fastir pennar 19. febrúar 2012 16:14
Jón Hákon Halldórsson fréttamaður á Vísi.
Jón Hákon Halldórsson fréttamaður á Vísi.
Sigur réttlætisins, sögðu sumir eftir að dómur Hæstaréttar um vexti af gengistryggðum lánum féll í síðustu viku. Hagsmunasamtök heimilanna sögðu að stjórnvöld og fjármálastofnanir landsins hefðu beitt tugi þúsunda heimila efnahagslegu ofbeldi með verkum sínum. Hafa þau lagt fram kæru á næstum allar stjórnir og bankastjóra á árabilinu 2001 til 2012 fyrir að veita gengistryggð lán og innheimta með ólöglegum hætti.

Samkvæmt dómnum námu viðbótarvextirnir sem Frjálsa fjárfestingabankinn krafðist, en átti ekki rétt á samkvæmt dómnum á miðvikudaginn, nam tæpum 6,6 milljónum króna. Í fréttum Stöðvar 2 á fimmtudaginn var greint frá því að niðurstöður dómsins þýddu að hjónin sem stefndu bankanum í umræddu prófmáli fái eftirstöðvar láns sins niðurfærðar um 27%. Það er því augljóst að umtalsverðir hagsmunir voru í húfi fyrir umrædd hjón. Á þessari stundu liggur ekkert ljóst fyrir um það hversu miklir hagsmunir eru í húfi hjá öðrum lántakendum. En sennilegast verða þeir metnir í milljónum í mörgum tilfellum.

Það er óhætt að taka undir það sem Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði á þingfundi á fimmtudaginn. Ávallt ber að fagna þegar fólk nær rétti sínum fram í dómsmáli, eins og gerðist í þessu tilfelli. Sér í lagi ef bankarnir eru í stakk búnir til að standa af sér það högg sem þeir hafa orðið fyrir án þess að ríkið þurfi að leggja þeim til meira eigið fé. En um leið og dómurinn var kveðinn upp gætti óánægju með það misræmi sem nú verður þegar fyrir liggur að þeir sem tóku ólögleg gengistryggð lán fá lánin niðurfærð en ekki þeir sem voru varkárir og tóku íslensk verðtryggð lán.

Færa má rök fyrir því að þeir sem hafi tekið verðtryggð lán kunni hugsanlega að líða fyrir áhrif dómsins því að áhrifin kunna að verða þau að peningamagn í umferð eykst þegar fólk með gengistryggðu lánin fær endurgreitt frá bankastofnunum vegna ofgreiddra vaxta. Það leiðir síðan til aukinnar verðbólgu, sem aftur leiðir til þess að verðtryggðu lánin hækka. Samt liggur ekkert ljóst fyrir um þetta því að áhrif dómsins eru enn svo óljós og því varhugavert að slá því föstu hverjar afleiðingarnar verða.

Það breytir því ekki að þeir sem ábyrgð bera á efnahagsmálum geta vel reifað hugmyndir að viðbrögðum við því sem koma skal. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sagði í vikunni sem leið að óhjákvæmilegt væri að koma til móts við þá sem voru með verðtryggð lán vegna þess ósamræmis sem komið er upp eftir að vextir af gengistryggðum lánum hafa verið leiðréttir. Nefnir hann möguleika á að gera það með skattkerfisbreytingum, bótakerfi, niðurfærslum eða öðru.

Slíkar aðgerðir hefðu þá óhjákvæmilegar afleiðingar fyrir afkomu ríkissjóðs og spyrja má hvort þær myndu með einhverju móti auka á réttlæti. Ótal spurningar vakna upp, til dæmis um hag þeirra sem aldrei hafa haft efni á að kaupa sér íbúð og eru fastir á leigumarkaði. Myndi niðurfærsla á verðtryggðum lánum á kostnað ríkissjóðs tryggja hag þeirra að einhverju leyti? Og ef ekki, þyrfti ríkisvaldið þá ekki að ráðast í enn aðrar aðgerðir til að tryggja það? Er hægt að niðurfæra lán svo gætt sé að réttlæti í garð allra? Er eðlilegt að niðurfæra skuldir íbúðareigenda á kostnað skattgreiðenda? Lykilspurningin er þó sú hvort ríkissjóður gæti hreinlega ráðið við slíkar aðgerðir.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Ræður ríkissjóður við allar þessar niðurfærslur?