Innlent

Ræða peningaspil og spilafíkn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Málstofan hefst kl. 12.30 og lýkur kl. 14.00.
Málstofan hefst kl. 12.30 og lýkur kl. 14.00.
Málstofa um spilun peningaspila á Íslandi fer fram á morgun í Norræna Húsinu.

Í tilefni af heimsókn Dr. Heather Gray frá Harvard Háskóla standa Rannsóknarstofa um peningaspil og spilafíkn og Rannsóknarstofa um mannlegt atferli fyrir málstofu um peningaspil og spilavanda.

Málstofan verður í sal Norræna Hússins og hefst kl. 12.30 og lýkur kl. 14.00. Á málstofunni munu Daníel Þór Ólason og Heather Gray flytja erindi um rannsóknir sínar hér á landi og bjóða til umræðu um kosti og galla peningaspila á Internetinu. Málstofustjóri verður Dr. Guðberg K. Jónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×