Lífið

Ræða opinskátt um sambandsslitin tveimur árum síðar á myndbandi

Atli Ísleifsson skrifar
Andrew og Ali voru saman í sjö ár og dreymdu um að verja ævinni saman.
Andrew og Ali voru saman í sjö ár og dreymdu um að verja ævinni saman.
Ali og Andrew voru saman í sjö ár og dreymdu um að verja ævinni saman. Fyrir tveimur árum bundu þau hins vegar enda á sambandið og koma nú saman fyrir framan myndavélar til að ræða opinskátt um hvað raunverulega gerðist sem leiddi til þess að þau hættu saman.

Fyrsta spurningin snýr að framhjáhaldi Andrew en þau ræða jafnframt gamla drauma sem sneru að því að þau myndu ganga í það heilaga.

Þau Andrew og Ali taka hér þátt í verkefninu The And þar sem þrjátíu pör hafa boðið sig fram til að svara erfiðum spurningum um lífið, ástina og framtíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×