Innlent

Ræða að Óttarr segi af sér þingmennsku

Jóhann Óli Eiðsson og Snærós Sindradóttir skrifa
Ef Óttarr segir af sér þingmennsku til að gegna ráðherraembætti kemst hann ekki aftur á þing nema að gengnum Alþingiskosnum.
Ef Óttarr segir af sér þingmennsku til að gegna ráðherraembætti kemst hann ekki aftur á þing nema að gengnum Alþingiskosnum. Vísir/ERNIR
Ræddur verður á stjórnarfundi Bjartrar framtíðar í kvöld sá möguleiki að Óttarr Proppé, formaður flokksins, segi af sér þingmennsku til að gegna embætti utanþingsráðherra í nýrri ríkisstjórn. Í þingflokki Bjartrar framtíðar eru fjórir þingmenn, en með afsögninni hefur flokkurinn tækifæri til að styrkja þingflokk sinn frekar og jafnframt stýra ráðuneyti.

Heimildir Fréttablaðsins herma að þessi háttur sé eini möguleikinn í stöðunni í huga margra stjórnarmanna Bjartrar framtíðar. Ekkert í stjórnskipan landsins heimilar að þingmaður taki sér tímabundið leyfi frá þingstörfum og kalli inn varamann á meðan ráðherraembætti er gegnt. Því þyrfti Óttarr að segja af sér og gæti ekki tekið sæti á þingi aftur nema að gengnum nýjum alþingiskosningum.

Stjórnarmyndunarviðræður eru langt komnar. Í dag mun Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, funda einslega með öllum þingmönnum flokksins eins og venja er hjá Sjálfstæðisflokknum.

Á fundinum leggur hver þingmaður fram ósk sína um stöðu á kjörtímabilinu, til dæmis að viðkomandi óski eftir ráðherrastól eða formennsku í ákveðnum nefndum. Í kvöld verður stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar kynntur á flokksráðsfundi í Valhöll, stjórnarfundi Bjartrar framtíðar og hjá stjórn Viðreisnar og tillaga um ríkisstjórnarsamstarf borin upp. 

Á morgun, þriðjudag, kynnir Bjarni ráðherraskipan Sjálfstæðisflokksins í nýrri ríkisstjórn fyrir þingflokknum og ber hana til atkvæða. Venja er að slík tillaga sé samþykkt athugasemdalaust en þó geta skapast nokkuð heitar umræður um tillöguna og dæmi eru um það í sögu flokksins að breytingatillögur hafi verið lagðar fram og um þær greiddar atkvæði.

Upp frá því má ætla að ný ríkisstjórn verði kynnt almenningi.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×