Erlent

Ráðvilltir Bretar spyrja Google hvað gerist næst

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er von að þeir spyrji.
Það er von að þeir spyrji. Vísir/Getty
Tölur frá Google sýna að Bretar hafa leitað til leitarvélar Google til þess að fá svör við því hvað gerist næst eftir sögulega þjóðaratkvæðagreiðslu Breta þar sem ákveðið var að Bretland myndi ganga úr Evrópusambandinu.

Samkvæmt tölum frá Google Trends sem mælir hvað netnotendur leita eftir á Google sést að skömmu eftir að kjörstöðum var lokað í gærkvöldi leituðu Bretar eftir svörum við því hvað myndi gerast segðu Bretar sig úr ESB. Um 250 prósent aukning varð á leitarfrasanum „Hvað gerist ef við yfirgefum ESB“.

 

 

 

 

Ef til vill bendir þetta til þess að kjósendur hafi margir hverjir ef til vill ekki áttað sig á afleiðingum þjóðaratkvæðagreiðslunnar en gæti þó einnig varpað ljósi undrun og ringlun eftir að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru gerðar ljósar.

Einnig varð vart við gríðarlega aukningu á leit að svörum við spurningunni hvort að Bretland væri enn í ESB eða ekki en um 2450 prósent aukning varð á leitarfrasasnum „erum við enn inn í ESB eða ekki.“

Bretland er enn hluti af ESB og verður það allt þangað til samningaviðræðum við ESB lýkur um skilmála brotthvarfs Bretlands. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar er reyndar ekki lagalega bindandi en David Cameron, fráfarandi forsætisráðherra, Bretlands hefur sagt að niðurstaðan verði virt.

Gríðarleg óvissa ríkir þó núna um hvaða áhrif brotthvarf Bretlands mun hafa á efnahag og þjóðlíf í Bretlandi. Ljóst er að miðað við niðurstöður kosninganna að breska þjóðin er klofin, yngri kynslóðirnar er æfar út í þær eldri fyrir að takmarka framtíðarmöguleika þeirra með því að kjósa Bretland út úr ESB auk þess sem líklegt er talið að Skotland muni halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði sitt. Hlutabréfamarkaðir víða um heim hafa tekið mikla dýfu og pundið hefur veikst mikið. Því skal engan undra að Bretar séu ráðvilltir í dag.

Ljóst er að margir eru ósáttir við niðurstöðuna sem sést kannski best á því að í Bretlandi varð 100 prósent aukning á leitarfrasanum „Hvernig fæ ég írskt vegabréf.“





Svo virðist sem að ekki allir hafi verið það nákvæmlega á hreinu hvað hvert atkvæði myndi þýða en BBC tók viðtal við mann sem, sjá má hér að neðan, sem kaus með því að Bretland myndi yfirgefa ESB. Hann hafi þó fengið áfall eftir að David Cameron sagði af sér og sé nú áhyggjufullur yfir því hvað muni gerast.


Tengdar fréttir

Hlutabréfamarkaðir hrynja

Markaðurinn bregst mjög illa við tíðindum um væntanlegt brotthvarf Breta úr ESB




Fleiri fréttir

Sjá meira


×