Viðskipti innlent

Ráðuneyti hafnar kröfu um endurgreiðslu

fanney birna jónsdóttir skrifar
Ólafur Stephensen
Ólafur Stephensen
Atvinnuvegaráðuneytið hefur hafnað kröfu þriggja innflutningsfyrirtækja um endurgreiðslu útboðsgjalds vegna tollkvóta á búvörum. Fyrirtækin eru Hagar, Sælkeradreifing og Innnes.

Héraðsdómur Reykjavíkur taldi í forsendum dóms þann 17. mars að útboðsgjald væri ólögmætur skattur sem bryti í bága við stjórnarskrá. Í framhaldinu sendi Félag atvinnurekenda ráðuneytinu erindi 23. mars og krafðist þess að innflutningsfyrirtækjum yrði endurgreitt útboðsgjald sem greitt hefði verið fyrir fram vegna innflutningsheimilda sem enn hefðu ekki verið nýttar. Erindið var ítrekað 31. mars.

Lögmenn fyrirtækjanna hafa nú fengið nánast samhljóða bréf frá ráðuneytinu, þar sem segir: „Ráðuneytið hafnar greiðslu til umbjóðanda yðar enda fellst ráðuneytið ekki á rökstuðning yðar í fyrrgreindu bréfi.“ Ákvörðuninni fylgir enginn rökstuðningur af hálfu ráðuneytisins. Munu lögmenn fyrirtækjanna fara fram á rökstuðning frá ráðuneytinu.

„Enn og aftur blasir við fullkomið skeytingarleysi um hag neytenda, sem eiga mikið undir því að stjórnvöld fari að dómum dómsvaldsins í þessu máli. Innflutningsfyrirtækin munu að sjálfsögðu halda áfram að leita réttar síns. Verslunin bíður eftir því að geta lækkað verð til neytenda. Það eina sem stendur í vegi fyrir því er þvermóðska embættismanna sem geta ekki sætt sig við að neytendur fái að njóta þess ábata sem fylgir frjálsum viðskiptum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×