Innlent

Ráðlegt að huga að niðurföllum í stormi morgundagsins

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Gular viðvaranir Veðurstofunnar eru auk þess í gildi um allt land en búist er við mikilli úrkomu seinnipartinn á morgun.
Gular viðvaranir Veðurstofunnar eru auk þess í gildi um allt land en búist er við mikilli úrkomu seinnipartinn á morgun. VÍSIR/VILHELM
Búist er við miklu hvassviðri sunnan- og vestanlands seinnipartinn á morgun. Þá mun auk þess hlýna í veðri með mikilli úrkomu og eru íbúar á Suður- og Vesturlandi, auk höfuðborgarsvæðisins, sérstaklega beðnir að huga að niðurföllum þegar hlánar.

„Það er í raun og veru bara hæg breytileg átt í nótt og á morgun, með stöku éljum á sunnan- og vestanverðu landdinu, en svo fer að hvessa síðdegis á morgun sunnanlands og þykknar upp,“ segir Daníel Þorláksson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi.

„Það hvessir ekki að ráði fyrr en eftir hádegi á morgun, þá bætir í vind syðst á landinu með staðbundnum stormum. Annars staðar á landinu verður þokkalegasta veður til útivistar lengi vel á morgun, en þó ekki allan daginn.“

Íbúar fyrirbyggi vatnstjón

Eins og áður sagði er búist við austan- og suðaustan hvassviðri eða stormi, með tilheyrandi rigningu eða slyddu á láglendi, á Suður- og Vesturlandi á morgun, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu sem naut þó hægviðris og sólskins í dag. Gular viðvaranir Veðurstofunnar eru auk þess í gildi á áðurnefndum svæðum og um allt land á miðvikudag.

Vegna hlýinda og úrkomu seinniparts dags á morgun er mælt með því að íbúar á Suður- og Vesturlandi hugi að því að rigningar- og leysingarvatn komist sína leið í fráveitukerfi til að fyrirbyggja vatnstjón, að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:

Sunnan 13-20 m/s og rigning en skúrir síðdegis. Styttir upp og birtir til á Norður- og Austurlandi með deginum. Hiti 3 til 8 stig. Suðvestlægari um kvöldið og fer að kólna.

Á þriðjudag:

Suðvestan 13-20 og slydduél, en hægari og léttskýjað norðaustantil. Dregur úr vindi og kólnar með deginum, él sunnan- og vestanlands um kvöldið. Frost 0 til 5 stig, en rétt yfir frostmarki með suðurströndinni.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með rigningu, slyddu eða snjókomu, talsverð úrkoma um sunnanvert landið. Lengst af vægt frost, en hiti 0 til 5 stig um tíma. Suðvestan 8-13 um kvöldið með éljum, en rofar til norðaustantil.

Á fimmtudag:

Allhvöss suðvestanátt og él en bjart með köflum um landð norðaustanvert. Frost um land allt.

Á föstudag:

Líkur á sunnan stormi eða roki með talsverðri rigningu en úrkomuminna fyrir norðan. Hlýnar í veðri.

Á laugardag:

Suðvestlæg átt og él yfirleitt bjart á Norður- og Norðausturlandi. Hiti um og undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×