Fótbolti

Ráðleggingar til Íslendinga í Nice á leikdag

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eins og sjá má er stuðningsmannasvæðið í Nice við ströndina. Frekari skýringarmyndir af Nice, leikvanginum og akstursleiðum má sjá á Facebook-síðu Ríkislögreglustjóra, hér að neðan.
Eins og sjá má er stuðningsmannasvæðið í Nice við ströndina. Frekari skýringarmyndir af Nice, leikvanginum og akstursleiðum má sjá á Facebook-síðu Ríkislögreglustjóra, hér að neðan.
England og Ísland mætast í sextán liða úrslitum á EM í Frakklandi annað kvöld klukkan 21 að staðartíma. Rúmlega þrjú þúsund Íslendingar verða á leiknum og hefur ríkislögreglustjóri, í samstarfi við lögregluyfirvöld í Nice, tekið saman góð ráð fyrir íslenska ferðalanga.

Engin bílastæði eru í nágrenni við leikvanginn. Þeir sem koma á bílum verða því að leggja í miðbænum, flugvallarsvæðinu eða við M.I.N. markaðinn. Bílastæði við M.I.N. markaðinn mun opna 5 klst fyrir leikinn og er gjaldfrálst. Markaðurinn verður lokaður og því ætti að vera nóg um stæði. Þaðan mun síðan rúta flytja stuðningsmenn langleiðina að leikvanginum. 

Ýmis önnur úrræði eru í boði en öryggisgæsla er mismunandi og eins verðið. Flest bílastæðin eru opin allan sólahringinn.

Það eru fjórar stoppistöðvar (Gare Thiers, Fan Zone, Flugvöllurinn, M.I.N. bílastæðin) þar sem stuðningsmenn/áhorfendur verða fluttir á leikvanginn. Ferðirnar munu hefjast 5 klst. fyrir leik, en leikvangurinn mun opna 3 klst. fyrir leik. Fargjaldið fram og tilbaka er 3 evrur. Rúturnar munu stoppa við Arboras rétt sunnan við leikvanginn.

Þá er ástæða til að minna Íslendinga á mikilvægi sólarvarnar eins og fjallað var um á Vísi í gærkvöldi. Sjá að neðan.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×