Erlent

Ráðist á ræðismannsskrifstofu Indlands í Afghanistan

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Skotum var hleypt af og sprengjur sprungu.
Skotum var hleypt af og sprengjur sprungu. vísir/epa
Ráðist var á ræðismannsskrifstofu Indlands í Mazar-i-Sharif í norðurhluta Afganistan í kvöld. Engan sakaði en skotum var hleypt af og sprengjur sprungu. Þá freistuðu árásarmennirnir þess að komast inn í bygginguna en öryggissveitum tókst að koma í veg fyrir það.

Til átaka kom á milli öryggissveita og uppreisnarmanna og standa þau enn yfir, að sögn viðmælanda BBC sem staddur er í byggingunni. Starfsmenn séu þó allir heilir á húfi.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×