Innlent

Ráðist á öryggisvörð í austurborginni

Fleiri en einn karlmaður réðust á öryggisvörð, sem jafnfrfamt er afgreiðslumaður  í sólarhringsverslun í austurborginni, upp úr miðnætti. Kom til átaka og hlaut öryggisvörðurinn einhverja áverka, en þó ekki alvarlega.

Árásarmennirnir voru horfnir af vettvangi þegar lögreglu bar að, en vitað er hverjir þeir eru og er þeirra nú leitað. Ekki kemur fram í skeyti lögreglu hvort þeir rændu einhverju í leiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×