Innlent

Ráðist á ölvaðan mann í Austurstræti

Gissur Sigurðsson skrifar
Árásarmaðurinn forðaði sér áður en lögregla kom á staðinn.
Árásarmaðurinn forðaði sér áður en lögregla kom á staðinn. Vísir/KTD
Ráðist var á ölvaðan mann í Austurstræti á öðrum tímanum í nótt og honum veittir áverkar í andliti. Árásarmaðurinn forðaði sér áður en lögregla kom á vettvang.

Þolandinn var svo illa áttaður að hann gat lítið tjáð sig um málið. Var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Annar var líka mjög illa áttaður þegar lögreglan kom að honum þar sem hann var uppi á þaki bíls á bílastæði í Breiðholti. Hann var vistaður í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×