Golf

Ráðist á kylfing á PGA-mótaröðinni

Robert Allenby
Robert Allenby Facebook/Golfchannel
Ástralski kylfingurinn Robert Allenby gerði ekki góða för til Hawaii í síðustu viku en honum mistókst að ná niðurskurðinum í Sony Open og þurfti því að sitja hjá yfir helgina.

Það átti eftir að hafa afar leiðinlegar afleiðingar í för með sér fyrir Allenby, sem skellti sér í kjölfarið á krá í Honululu þar sem honum var rænt, eignum hans stolið og hann laminn ítrekað í andlitið.

Allenby skýrði frá atvikinu, sem hann sjálfur segist muna mjög takmarkað eftir, í sjónvarpsþætti í Ástralíu daginn eftir árásina en hann birti einnig meðfylgjandi mynd á Facebook síðu sinni.

„Þetta er eitthvað sem maður heldur að gerist bara í kvikmyndum,“ sagði Allenby í viðtalinu.

Ég sá ekki hverju þeir lömdu mig með en það var mjög sársaukafullt. Ég fór á klósettið og þegar að ég kom til baka þá réðust nokkrir menn á mig sem ég hafði aldrei séð áður. Ég man ekkert hvað gerðist eftir þetta nema þegar að ég vaknaði í almenningsgarði sem var fullur af heimilislausu fólki.

Allenby hefur sigrað í fjórum mótum á PGA mótaröðinni og 22 atvinnumótum á ferlinum en síðasti sigur hans kom árið 2009 á ástralska PGA-meistaramótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×