Tíska og hönnun

Raðir og rangar stærðir ekki hindrun í Yeezy droppi

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þau Aron, Sigríður og Guðmundur biðu fyrir utan Húrra Reykjavík eftir Yeezy-pari.
Þau Aron, Sigríður og Guðmundur biðu fyrir utan Húrra Reykjavík eftir Yeezy-pari. Vísir/Eyþór
Aftur beið fólk spennt eftir nýjustu skónum í Yeezy Boost línu Kanye West, en fyrir utan bæði karla- og kvennabúð Húrra Reykjavík mynduðust langar raðir um helgina. Einhverjir biðu heila nótt.

Aron Kristinn Jónasson var einn af þeim sem mættu snemma í röðina á laugardagsmorgun.

„Ég vaknaði klukkan 6.45, klæddi mig vel og var mættur í kringum 7.00. Röðin var þá að inngangi Kirkjuhússins á móti Spúútnik á Laugavegi. Ég beið í fimm tíma til að komast inn í búðina en það var fínt veður svo þetta leið hratt. Það voru alveg einhverjir gaurar sem biðu í 16 tíma sem mér finnst persónulega of mikið fyrir skópar,“ segir Aron, en aðspurður að því hvort hann ætli sér að selja skóna sína, eins og sumir hafi verið að gera segir hann að „skór [séu] til að nota“. Aron náði þó ekki sinni stærð en lét það ekki stoppa sig.

Aron Kristinn Jónasson mætti snemma.Vísir/Eyþór
„Með svona „limited“ skó þá vinnur maður bara með það sem er í boði, ég nota t.d. stærð 44 venjulega en fékk skóna í 422/3. Tók bara innleggið úr og tróð mér í þá. Hefði sennilega notað allt frá 42-451/3. 5 klukkutímar fyrir par af Yeezy er „no brainer“. Þægilegir svartir skór sem auðvelt er að nota við hvaða föt sem er.“

Sigríður Margrét beið nú ekki lengi en þetta var ekki hennar fyrsta biðröð eftir Kanye West-tengdum vörum.Vísir/Eyþór
Sigríður Margrét var heppin og beið ekki lengi í röðinni en henni finnst samt ekkert tilökumál að bíða í nokkra klukkutíma eftir varningi tengdum Kanye West enda safnari.

„Ég mætti sirka klukkan 11.00 og beið í svona 20-30 mínútur í röð. Ég ætla að eiga skóna og ég myndi aldrei tíma að selja þá. Ég er mikill aðdáandi Kanye West og finnst skórnir sjálfir mjög flottir.

Mér finnst líka gaman að safna – er búin að kaupa varning líka eftir Kanye og beið eftir honum í sirka þrjá klukkutíma í Boston fyrir Saint Pablo-tónleika sem við kærastinn minn fórum á.“

Guðmundur Ragnarsson, kærasti Sigríðar, mætti einmitt líka í röðina, nema þau biðu fyrir utan sitthvort útibúið af Húrra. Hann mætti á svipuðum tíma og Sigríður og þurfti því ekki að bíða jafn lengi og sumir, en líkt og Aron þurfti hann að sætta sig við aðra stærð en þá sem hann venjulega notar.

„Ég beið í sirka 25-30 mínútur í röð eftir að komast inn. Ég var mjög heppinn að fá stærð sem nokkurn veginn passar á mig,“ segir Guðmundur sem tekur það fram að hann ætli að sjálfsögðu að ganga í skónum. Aðspurður hvers vegna hann hafi verið til í að standa í röð eftir djásninu stendur ekki á svörum:

„Ég hef mikla ástríðu fyrir „sneakers“ og myndi aldrei missa af Yeezy droppi!“

Guðmundur Ragnarsson myndi aldrei missa af Yeezy droppi.Vísir/Eyþór

Tengdar fréttir

Strigaskórinn ein skemmtilegasta hönnunarvara sem hægt er að kaupa

Sneaker-menningin virðist loksins hafa numið land á Íslandi ef eitthvað er að marka röðina sem myndaðist nú á dögunum í tengslum við sölu tískuverslunar á skóm hönnuðum af Kanye West. Fréttablaðið ákvað að skoða fyrirbærið og ræddi við tvo málsmetandi einstaklinga í þessum geira






Fleiri fréttir

Sjá meira


×