Lífið

Radiohead krefst svara vegna dauða tæknimanns á sviði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Thom Yorke, söngvari Radiohead, á tónleikum sveitarinnar í New York 11. júlí síðastliðinn.
Thom Yorke, söngvari Radiohead, á tónleikum sveitarinnar í New York 11. júlí síðastliðinn. Vísir/getty
Breska hljómsveitin Radiohead krefst svara vegna slyss sem varð þegar svið, sem hljómsveitin átti að halda tónleika á skömmu síðar, féll saman í kanadísku borginni Toronto árið 2012. Tæknimaður sveitarinnar, Scott Johnson, lést í slysinu.

Radiohead sneri aftur til Toronto í gær, í fyrsta sinn síðan slysið varð, og hélt þar tónleika. Söngvari sveitarinnar, Thom Yorke, ávarpaði áhorfendaskarann og lýsti yfir óánægju með rannsókn á slysinu, sem hvílt hefur eins og mara á meðlimum sveitarinnar í sex ár.

„Fólkið sem á að taka ábyrgð á slysinu hefur enn ekki tekið ábyrgð. Þögnin er ærandi,“ sagði Yorke og efndi í kjölfarið til mínútuþagnar í minningu Johnson. Myndband af ávarpi Yorke má sjá í spilaranum hér að neðan.

Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, varð slysið klukkutíma áður en áhorfendum var hleypt inn á tónleikastaðinn Downsview Park í Toronto árið 2012. Eins og áður sagði lést hinn 33 ára gamli Johnson nær samstundis er hann varð fyrir brakinu og þrír slösuðust að auki.

Ári síðar voru þrír ákærðir fyrir aðild að slysinu: afþreyingarfyrirtækið Live Nation, verkfræðingurinn Domenic Cugliari og verktakinn Optex Staging and Service. Allir ákærðu neituðu sök. Dómsmálinu var hins vegar vísað frá vegna úrskurðar Hæstaréttar Kanada sem hafði úrskurðaði að öll mál ættu að fara fyrir dóm í héraðsdómstólum innan átján mánaða.

Meðlimir Radiohead hafa ítrekað lýst yfir óánægju sinni með lyktir málsins. Á miðvikudag sagðist trommari sveitarinnar, Phil Selway, „bálreiður“ yfir því að andlát Johnson hefði aldrei verið útskýrt á fullnægjandi hátt. Hann bætti þó við að rannsókn á slysinu ætti að hefjast á næsta ári.


Tengdar fréttir

Kannast ekki við lögsókn Radiohead gegn Lönu Del Rey

Talsmaður útgáfufyrirtækisins Warner/Chappell, sem er með hljómsveitina Radiohead á sínum snærum, segir það ekki rétt að hljómsveitin hafi höfðað mál gegn tónlistarkonunni Lönu del Rey.

Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út

Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×