Viðskipti innlent

Ráðin sviðsstjóri hjá Norðurorku

Halla mun hefja störf hjá Norðurorku hf. um næstu mánaðamót.
Halla mun hefja störf hjá Norðurorku hf. um næstu mánaðamót.
Halla Bergþóra Halldórsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustu- og fjármálasviðs Norðurorku hf.

Í fréttatilkynningu Norðurorku um ráðninguna segir að Halla sé viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún hafi starfað hjá PricewaterhouseCoopers við endurskoðunarstörf og rekstrarstjórnun, fyrst 2000-2004 og síðan aftur 2012-2014, og sem forstöðumaður fjármála hjá Verði vátryggingum 2004-2007. Halla var forstöðumaður fjármálasviðs Saga Capital 2007-2011 en árið 2012 tók hún að sér tímabundið starf sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Þórshafnar, en hún hefur starfað í endurskoðunarnefnd sjóðsins.

Halla, sem er gift Brynjari Bragasyni verkfræðingi, var valin úr hópi 39 umsækjenda.

Norðurorka hf. er orku- og veitufyrirtæki sem stofnað var árið 2000 með sameiningu Hita- og Vatnsveitu Akureyrar og Rafveitu Akureyrar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×