Innlent

Ráðherrastólarnir enn nafnlausir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar á fundi um mögulega stjórnarmyndun.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar á fundi um mögulega stjórnarmyndun. Vísir/Eyþór
Ekki er búið að ákveða endanlega ráðherraskipan í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Flokkarnir munu fyrst samþykkja málefnasamning, en tillaga að ráðuneytisskiptingu hefur verið kynnt fyrir þingflokkum flokkanna þriggja.

Í Morgunblaðinu í dag er birt tillaga að ráðherraskiptingu. Þar er gert ráð fyrir að forsætisráðuneyti, innanríkisráðuneyti, utanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála innan atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis falli í skaut Sjálfstæðisflokksins. 

Viðreisn mun fylla hinn helming þess síðastnefnda með ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og einnig taka við fjármálaráðuneyti og félags- og húsnæðismálaráðherra innan velferðarráðuneytis. 

Heilbrigðisráðherra innan þess sama ráðuneytis ásamt umhverfis- og auðlindaráðuneytinu falli til Bjartrar framtíðar.

Samkvæmt heimildum Vísis mun þetta vera sú skipan sem kynnt hefur verið fyrir þingflokkunum þremur, en skjótt skipast veður í lofti og gæti hún hafa breyst eftir samtöl formanna flokkanna í gær. Ekkert sé endanlega ákveðið varðandi ráðuneytisskiptingu fyrr en málefnasamningur hefur verið afgreiddur. 

Tillögur kynntar á morgun

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun hitta alla þingmenn flokksins stuttlega í Valhöll í dag til að ræða störf þingflokks á kjörtímabilinu. Þar verður meðal annars farið yfir nefndarsetu þingmanna. 

Á morgun mun Bjarni svo kynna ráðherraskipan flokksins fyrir þingflokki og bera hana til atkvæða. Venja er að slík tillaga sé samþykkt athugasemdalaust en þó geta skapast nokkuð heitar umræður um tillöguna og dæmi eru um það í sögu flokksins að breytingatillögur hafi verið lagðar fram og um þær greiddar atkvæði.

Gert er ráð fyrir að í framhaldinu verði ný ríkisstjórn kynnt almenningi. 


Tengdar fréttir

Furðar sig ekki á gagnrýni

"Það eru engar skýrar línur í pólitíkinni,“ segir Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar um myndun ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn. Hann segist taka þátt í samstarfinu af heilindum og segir ekki ósætti í flokknum um samstarfið.

Ræða að Óttarr segi af sér þingmennsku

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu óska eftir ráðuneytum og nefndarformennsku við formann sinn í dag. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins og stjórn Bjartrar framtíðar funda í kvöld og fara yfir stjórnarsáttmála nýrrar stjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×