Innlent

Ráðherra segir þörf á að gera breytingar á vinnufyrirkomulagi sérfræðilækna

Atli Ísleifsson skrifar
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var gestur Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var gestur Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Vísir/Anton Brink
Heilbrigðisráðherra telur að gera þurfi breytingar á vinnufyrirkomulagi sérfræðilækna á Landspítalanum. Þær breytingar taki þó tíma. Þá segir hann aðgengi að sérfræðilæknum hér á landi vera kannski orðið of mikið.

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, var gestur Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Kristján sagði aðgengi almennings að sérfræðilæknum væri kannski orðið alltof greitt. „Í stað þess að stoppa í heilsugæslunni og tappa þar af einhverjum þáttum sem heilsugæslan á og getur vel sinnt þá fer fólk framhjá henni og það sér maður sérstaklega ef maður horfir á landið allt og sér hvernig heilsugæslan úti á landi vinnur „versus“ hvernig streymi fólks til lækninga sérstaklega er hérna á höfuðborgarsvæðinu. Þarna eru himin og haf á milli að fólk fer fremur beint þangað.“

Ekki nægilega sterk heilsugæsla

Ráðherra segir að þetta kunni að stafa af því að heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu sé ekki nægilega sterk og anni ekki nægilega mörgu fólki.

Þá var Kristján einnig spurður út í aukastörf sérfræðilækna en landlæknir hefur ítrekað bent á að sífellt fleiri sérfræðingar velji að minnka við sig vinnu eða hætta algjörlega störfum á Landspítalanum og vinna í staðinn á eigin stofu fyrir betri laun. Landlæknir hefur því sagt að Landspítalinn verði að fá skýr fyrirmæli um að sérfræðingar verði framvegis einungis ráðnir í fullar stöður.

Ætlarþúaðbregðast eitthvaðviðþessu? Geta stjórnvöld tekiðeitthvaðskref til aðmætaþessum sjónarmiðum Landlæknis? Ertu sammálaþessu aðþetta ségalliíkerfinu?

„Já, stjórnvöld geta brugðist við og við eigum að gera það og við erum að vinna í því,“ segir Kristján, en bendir á að allar breytingar á heilbrigðiskerfinu taki þó sinn tíma, þá sérstaklega grundvallarbreytingar líkt og þessar. Hann segist alveg sammála Landmænisembættinu í því aðþað verði að verða einhver breyting á skipulagi starfseminnar á Landspítalanum að þessu leyti. „Það er alveg óumdeilt í mínum huga.“

Mikil og fjölbreyttþjónusta

Ráðherra segir sérfræðilækna vera að veita gríðarlega mikla og fjölbreytta þjónustu úti á markaði og þá starfsemi sé ekki hægt að leggja hana af eða endurskipuleggja með einni handsveiflu. „Ætli það sé ekki um það bil 300 þúsund komur til sérgreinalækna utan opinbera kerfisins á ári. Það sjá allir hversu mikil þjónusta er þarna veitt,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra en hlýða má á viðtalið um þessi mál í heild sinni í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×