Innlent

Ráðherra hugsi yfir lélegri endingu íslenskra vega

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Slæmt veðurfar og umferðaraukning setti strik í reikninginn að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra.
Slæmt veðurfar og umferðaraukning setti strik í reikninginn að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra.
„Þessi vetur fór með veginn. Hann er slæmur, mjög slæmur,“ Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, um hringveginn. Íslenskir vegir hafi komið illa undan vetri og var það ekki síst sökum þess sem ríkisstjórnin ákvað að verja fjórum milljörðum af almennum varasjóði í vegaframkvæmdir.

Sigurður Ingi var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis.

Spurður hvort efnið í vegunum sé ekki nógu gott svarar Sigurður að hann vilji ekki fullyrða um það en það sé hans persónulega skoðun að vegirnir séu ekki nægilega endingargóðir. Hann hefur ráðgert að setja á fót starfshóp með Vegagerðinni, ráðuneytinu og öðrum utanaðkomandi aðilum til þess að rannsaka hvort efnið í vegunum sé nógu gott. „Það er, jú, viðurkennt að eftir hrunið fóru menn að leita leiða til þess að viðhalda lengri köflum.“



Sigurður bætir þó við að það kunni að vera ýmsar ástæður fyrir því að vegirnir séu eins slæmir og raun ber vitni. Slæmt veðurfar og umferðaraukning hafi sett strik í reikninginn.

Sigurður var spurður hvort uppbygging á vegum gangi nægilega hratt fyrir sig.

„Ef við horfum á landið allt þá myndum við sjá að það er ýmislegt komið af stað og verður í allt sumar og eins langt fram á haust og hægt er í því að lagfæra það sem þarf að lagfæra. Við settum jú fjóra milljarða í þetta og þeir munu gera mikið á þessum næstu mánuðum. Vissulega vildi maður alltaf sjá allt gerast einn, tveir og þrír en maður lærir það nú þegar maður vinnur á Alþingi eða í ráðuneytunum að það tekur nú allt sinn tíma frá því menn fá góða hugmynd og þar til hún er komin í framkvæmd.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×