Innlent

Ráðherra fyrirskipar úttekt á starfsemi Matvælastofnunar

Anton Egilsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/Stefán

Úttekt verður gerð á ýmsum þáttum er lúta að rekstri og starfsumhverfi Matvælastofnunar. Gert er ráð fyrir að niðurstöður framangreindra athugana liggi fyrir í lok febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Gunnar Bragi Sveinsson, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur falið þeim Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa og doktor Ólafi Oddgeirssyni dýralækni, framkvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Food Control Consultants Ltd í Skotlandi að framkvæma úttektina.

„Þeir munu fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eftirlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit og greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Þá munu sérfræðingar ráðuneytisins fara yfir þau lög sem gilda um starfsemi stofnunarinnar, beitingu þeirra og greina hvort skortur á lagaúrræðum hamli því að stofnunin geti veitt almenningi og opinberum stofnunum upplýsingar úr eftirlitsskýrslum. Kristín Benediktsdóttir dósent við Háskóla Íslands mun verða ráðuneytinu til aðstoðar hvað varðar lagafyrirmæli er lúta að birtingum upplýsinga.“ Segir í tilkynningunni frá ráðuneytinu.

Þá segir jafnframt í tilkynningunni að í ráðuneytinu sé unnið að endurskoðun laga um Matvælastofnun og verði afrakstur úttektarinnar meðal annars nýttur við þá lagasmíð.

Tilkynningin kemur stuttu eftir að mál eggframleiðandans Brúneggja kom upp. Þar kom í ljós að Brúnegg hefði um árabil blekkt neytendur með sölu á vistvænum eggjum og að aðbúnaði hjá fyrirtækinu hefði verið verulega ábótavant.  

Margir lýstu yfir óánægju sinni í garð Matvælastofnunar í kjölfar málsins en tveir stærstu eggjaframleiðendur landsins, Nesbú og Stjörnuegg töldu stofnunina hafa brugðist ábyrgðarhlutverki sínu.

Í kjölfar gaf Matvælastofnun út yfirlýsingu þar sem fram kom að hluti starfsmanna Matvælastofnunar vildi upplýsa neytendur um að ástandið hjá Brúneggjum í lok árs 2015 og stöðva dreifingu eggja frá fyrirtækinu. Yfirstjórn stofnunarinnar hafi hins vegar komið í veg að það var gert.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×