Innlent

Ráðherra forðast Hafnfirðinga

Jakob Bjarnar skrifar
Rósa og Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri, en honum hefur ekki tekist að ná eyrum ráðherra.
Rósa og Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri, en honum hefur ekki tekist að ná eyrum ráðherra. visir/pjetur
Bæjarráð Hafnarfjarðar mun funda með þingmönnum kjördæmisins nú síðdegis vegna fyrirhugaðs flutnings Fiskistofu úr bænum til Akureyrar. Mikil gremja er í Hafnarfirði vegna málsins.

Á bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðar í gær voru lagðar fram tölur um þróun atvinnuleysis og íbúafjölda frá árinu 2007. Kom meðal annars fram að atvinnuleysi í Hafnarfirði í fyrra var 4,7 prósent en 3,5 prósent á Akureyri. Ennfremur að fjölgun íbúa á Akureyri var 7 prósent á sama tíma og íbúum á landsvísu fjölgaði um 6 prósent að meðaltali. Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur skorað á Sigurð Inga Jóhannsson ráðherra að endurskoða ákvörðun sína um að flytja Fiskistofu, en Hafnfirðingum gengur illa að ná eyrum Sigurðar Inga, enn hafa ekki borist viðbrögð hans við áskoruninni. Rósa Guðbjartsdóttir er formaður bæjarráðsins.

Sigurður Ingi. Ákvörðun hans um að flytja Fiskistofu norður er umdeild, vægast sagt.
„Nei, viðbrögð ráðherra eru engin enn sem komið er. Bæjarstjóri hefur reynt að ná sambandi við hann á síðustu dögum en ekki fengið nein svör ennþá. Við vonumst til að hann bregðist við þessu fyrr en síðar. Reyndar ætla bæjarfulltrúar í Hafnarfirði að hitta þingmenn og ráðherra, í þeim tilvikum, kjördæmisins núna í eftirmiðdaginn,“ segir Rósa. Og þar verður þetta mál rætt í þaula.

Við samanburð kemur í ljós að atvinnuástandið er síst betra í Hafnarfirði en á Akureyri.

„Já, sko með að taka saman þessar tölur erum við ekki að egna saman bæjarfélögum. Við erum bara að benda á að þessi byggðasjónarmið sem sögð eru búa þarna að baki standast ekki skoðun, eins og þessar tölur bera með sér. Þannig að okkur þótti tímabært að láta taka þetta saman og að þetta kæmi fram. 1. júlí síðastliðinn ályktaði bæjarráð Hafnarfjarðar, á móti þessum áformum. Og maður vænti þess í allri þeirri umræðu sem fram fór í samfélaginu í kjölfarið að það kæmu fram einhverjar tölulegar upplýsingar. En það hefur ekki gerst þannig að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði fundu sig knúin til að gera þetta sjá. Og þarna sést að þessi rök ráðherrans standast ekki skoðun,“ segir Rósa.


Tengdar fréttir

Fiskistofa – formið – og flutningurinn

Atlaga var gerð að lífsafkomu starfsmanna Fiskistofu og fjölskyldna þeirra með skyndilegri og óvæntri ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að flytja Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar.

Fiskistofumálið – mistök eða leiðrétting?

Fiskistofumálið og ýmislegt sem hefur verið fleygt fram í því samhengi hefur vakið athygli mína. Í áratugi hefur heyrst af því að stefna allra stjórnmálaflokka hafi í orði verið á þá lund að gæta beri að jafnvægi í byggð landsins og byggja upp störf utan höfuðborgarsvæðisins.

Starfsemi Fiskistofu lömuð

Fiskistofustjóri hefur ekki ákveðið hvort hann og fjölskylda hans flytja með Fiskistofu til Akureyrar. Samráðhópur á vegum atvinnuvegaráðherra fundar um málið í dag.

„Einhver vanhugsaðasta aðgerð sem ég man eftir“

Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, segir að það muni kosta meira en þrjár milljónir að þjálfa upp einn nýjan starfsmann á Fiskistofu ef núverandi starfsfólk flyst ekki með.

Byggðaklúður ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin ber sér mjög á brjóst og segist vinna í þágu hinna dreifðu byggða og tilkynnir með látum uppbyggingu opinberra starfa í landsbyggðunum. Það var höfuðefni þjóðhátíðarræðu forsætisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×