Innlent

Ráðherra boðar aukið jafnrétti við úthlutun peninga til íþrótta

Þóra Helgadóttir á að baki marga leiki með landsliðinu.
Þóra Helgadóttir á að baki marga leiki með landsliðinu. Fréttablaðið/stefán
„Aðferðum kynjaðrar fjárlagagerðar er beitt við úthlutun fjármagns til íþróttamála. Í fjármálaáætlun 2019-2023 eru kyngreindir mælikvarðar með markmiðum um að bæta umgjörð og auka gæði í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi ásamt markmiði um að efla umgjörð og stuðning við afreksíþróttafólk,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra íþróttamála.



Fréttablaðið sagði í gær frá nýrri ritgerð sérfræðinga
 við Háskólann í Reykjavík þar sem fram kemur að vísbendingar eru um að á síðustu tuttugu árum hafi lítið gerst á vettvangi ríkisvaldsins til þess að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í íþróttum.

Lilja segir að íþróttastefna sé í endurskoðun og þar sé lögð áhersla á að jafna tækifæri og þátttöku kynja. 

Sjá einnig: Lítill árangur hefur náðst við að auka jafnrétti í íþróttum

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra íþróttamála
Hún nefnir fleira.

„Í tillögum vinnuhóps um aðgerðir eftir #églíka frásagnir íþróttakvenna er lögð áhersla á gæði í íþróttastarfi fyrir stelpur jafnt sem stráka,“ segir Lilja.

Þá sé unnið að því að fjölga konum í stjórnum íþróttafélaga, en þær séu nú 36%.

„Jafnréttisstofu hefur verið falið að kalla eftir jafnréttisáætlunum íþróttafélaga og aðstoða við gerð þeirra,“ segir hún jafnframt og bætir við að ráðuneytið sé að láta gera úttekt á íþróttakennslu í skólum með það að markmiði að skoða hvernig áhrif íþróttakennsla getur haft á jafnrétti kynja, einkum til að hvetja stelpur til íþróttaiðkunar og starfa að íþróttamálum. 

Þóra Björg Helgadóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, segir ýmislegt hafa áunnist í jafnréttismálum hjá KSÍ.

„Það er breyting til batnaðar og KSÍ tók risastórt skref í því að jafna greiðslur til landsliðanna tveggja. Ég hef aldrei verið jafn stolt af KSÍ og þegar þeir tóku þessa ákvörðun,“ segir Þóra Björg. Þar vísar hún til þess að í byrjun janúar tilkynnti formaður KSÍ, Guðni Bergsson, að landsliðsmenn í karla- og kvennalandsliðum fengju jafnháar bónusgreiðslur fyrir landsleiki. Vísir greindi frá því að hver leikmaður fengi 300 þúsund fyrir sigurleik og 100 þúsund fyrir jafntefli. Áður höfðu landsliðsmenn í karlalandsliðinu fengið hærri greiðslur. Þóra segir að fyrir nokkrum árum hafi dagpeningagreiðslur til leikmanna verið jafnaðar.


Tengdar fréttir

Lítill árangur hefur náðst við að auka jafnrétti í íþróttum

Markmið um jafnrétti í íþróttum fyrir árið 2019 eru sambærileg þeim sem sett voru fram fyrir rúmum tuttugu árum. Lagt er til í nýrri ritgerð að kynjaðri fjárlagagerð verði beitt þegar fjármunum er úthlutað til íþróttastarfs hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×