Innlent

Ráðherra á eftir áætlun: Skipun samráðshóps ætti að liggja fyrir í seinasta lagi á laugardag

Anton Egilsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson.
Gunnar Bragi Sveinsson. Vísir/Stefán
Skipun samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga ætti að liggja fyrir í seinasta lagi á laugardag. Þetta staðfestir Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í samtali við fréttastofu. 

Alþingi samþykkti þann 13.september síðastliðin lög um breytingar á búvörulögum og fleiri lögum vegna búvörusamninganna. Í bráðabirgðaákvæði í lögunum segir: „Eigi síðar en 18. október 2016 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipa samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga. Tryggja skal aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019.“

Félag atvinnurekenda vakti athygli á því að ekki væri búið að skipa samráðshópinn en lögbundinn frestur til þess rann út í gær. Ýmsum hagsmunasamtökum sem gagnrýndu búvörusamningana fyrr á árinu var lofað aðild að samráðshópnum og er Félag atvinnurekanda á meðal þeirra.

Ákvæðið um stofnun samráðshópsins kom inn í lögin að tillögu meirihluta atvinnuveganefndar þingsins en Jón Gunnarsson veitir nefndinni forystu.  Í júlí síðastliðnum sagði Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, að hann vonaðist eftir því að þjóðarsátt næðist um búvörusamningana með þeim breytingum sem lagðar voru fyrir þingið. 

 

 


Tengdar fréttir

FA telur búvörusamninga enn brjóta gegn stjórnarskrá

Búvörusamningar landbúnaðarráðherra fela enn í sér ákvæði sem brjóta gegn stjórnarskrá þrátt fyrir breytingar meirihluta atvinnuveganefndar. Þetta segir framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

Vonast eftir þjóðarsátt um nýja búvörusamninga

Formaður atvinnuveganefndar Alþingis vonast eftir nokkurs konar þjóðarsátt um nýja búvörusamninga. Frumvarp um samningana verður eitt af stóru málunum á sumarþingi en nefndin mun leggja til breytingar áður en þing kemur saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×