Tónlist

Quarashi frumfluttu nýtt lag í Harmageddon

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Quarashi í skýjunum. Myndin var tekin við tökur á myndbandi við nýja lagið sem væntanlegt er á mánudag.
Quarashi í skýjunum. Myndin var tekin við tökur á myndbandi við nýja lagið sem væntanlegt er á mánudag. Vísir/Quarashi
Hljómsveitin Quarashi frumflutti splunkunýtt lag í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu 977 í dag. Þetta er fyrsta lagið sem Höskuldur Ólafsson rappar í með sveitinni síðan hann hætti í hljómsveitinni í árið 2003. Lagið heitir Chicago og í því koma í fyrsta sinn allir rapparar sveitarinnar fram. Þar má því ekki bara heyra nýjar rímur frá Hössa heldur einnig Egil „Tiny“, Ómari Súarez og Steina Fjeldsted en hér áður fyrr náðu þeir því aldrei að vera allir í sveitinni á sama tíma og verið var að vinna nýja tónlist.

Þeir Sölvi Blöndal og Steinar Fjeldsted mættu í viðtal í Harmageddon en Quarashi kemur fram á Þjóðhátíð í Eyjum til þess að fagna 20 ára afmæli sveitarinnar. Í viðtalinu greindu þeir frá því að sveitin væri að vinna að nýju efni fyrir utan þetta eina nýja lag. Þar ræddu þeir hvernig liðsmenn hafa breyst og þroskast á þeim tveimur áratugum sem hafa liðið

„Þegar við byrjuðum var Davíð Oddsson ennþá forsætisráðherra,“ sagði Sölvi meðal annars í gríni. Steini greindi frá því að í dag væri hann alveg hættur að taka eiturlyf en hann hefur rekið menningarsíðuna Albumm.is með góðum árangri.

Búið er að skjóta myndband við Chicago sem verður frumsýnt eftir helgi.

Heyra má nýja lagið í klippu úr Harmageddon hér að ofan en lagið byrjar í kringum 9:25, eða eftir að viðtalinu við Sölva og Steina lýkur.


Tengdar fréttir

Ómar Quarashi gabbaði vini sína

Tilkynnti á Facebook að út væri komin fyrsta sóló breiðskífa sín og hvatti alla að hlaupa út í plötubúð.

Gera hlutina ávallt eftir sínu höfði

Hljómsveitin Quarashi er 20 ára á þessu ári og er með ýmislegt planað til að fagna þeim tímamótum. Sveitin er í tökum á stóru myndbandi við nýtt lag, spilar á Þjóðhátíð og hefur verið að laumast í hljóðverið til að taka upp ný lög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×