Sport

Putin: Ólympíugull ekki eins merkilegt afrek þegar það vantar Rússana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það verða óvenju fáir Rússar sem ganga inn á völlinn í setningarhátíð Ríó.
Það verða óvenju fáir Rússar sem ganga inn á völlinn í setningarhátíð Ríó. Vísir/EPA
Vladimir Putin, forseti Rússlands, hitti Ólympíulið Rússa í dag og hélt um leið ræðu þar sem hann var harðorður gagnvart aðgerðum sérsambandanna sem hafa sett marga rússneska íþróttamenn í bann í aðdraganda Ólympíuleikanna í Ríó.

Ólympíuleikarnir í Rio de Janeiro verða settir eftir rúma viku. Allir rússneskir frjálsíþróttamenn verða bannaðir frá leikunum sem og fjölmargir aðrir í öðrum íþróttagreinum.

Vladimir Putin lítur á þessar aðgerðir sem mismunun og að Rússar munu ekki taka þessu þegjandi og hljóðalaust. Hann lofaði því að Rússar ætli að leita réttar síns.  Fréttastofa TASS segir frá.

Putin notaði líka sálfræði í ræðunni þegar hann reyndi að gera lítið úr Ólympíuleikum án Rússa. Stærsti hluti íþróttaheimsins er hins vegar á því að markviss og skipulögð ólögleg lyfjanotkun rússnesks íþróttafólks hefði átt að kalla á algjöra útilokun.

Alþjóðaólympíunefndin var ekki tilbúin að ganga svo langt í að setja allsherjarbann á Rússa en setti það í hendurnar á hverju sérsambandi fyrir sig að ákveða hvort og þá hvaða Rússar fengju að keppa.

„Það er augljóst að fjarvera rússnesks íþróttafólks í mörgum af íþróttagreinum leikanna minnkar styrkleika keppninnar og sér til þess að leikarnir verða ekki eins glæsilegir," sagði Vladimir Putin í ræðunni.

„Ég held líka að kollegar okkar hjá stærstu íþróttaþjóðunum geri sér einnig grein fyrir því að gildi verðlauna þeirra verði ekki eins mikið. Það er eitt að vinna öflugan andstæðing en það er allt annað að vinna veikari andstæðinga. Slíkur sigur skilur eftir annað bragði í munni, kannski slæmt bragð," sagði Putin.

„Skammsýnir pólitíkusar geta ekki einu sinni látið íþróttirnar í friði þrátt fyrir það að það eru þær sem sameinar fólk og eyðir út ríkjandi andmælum í samskiptum þjóða," sagði Putin.

Vladimir Putin segir Rússa ekki sætta sig við það að Rússar, sem hafa sannað það að þeir séu hreinir, séu settir í bann. „Við sættum okkur aldrei við slíka mismunun. Þetta er mótsögn við undirstöðuatriði Ólympíuleikanna," sagði Putin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×