Erlent

Pútín fundar með forseta Úkraínu

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Petró Porosjenkó, forseti Úkraínu, hafa ekki hisst frá því í byrjun júní þrátt fyrir aukna hörku í bardögum í Austur-Úkraínu.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Petró Porosjenkó, forseti Úkraínu, hafa ekki hisst frá því í byrjun júní þrátt fyrir aukna hörku í bardögum í Austur-Úkraínu. nordicphotos/afp
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Petró Porosjenkó, forseti Úkraínu, munu funda þann 26. ágúst vegna ástandsins í Úkraínu. Forsetarnir hafa ekki fundað síðan í byrjun júní þrátt fyrir mikið mannfall á síðustu vikum.

Úkraínski herinn hefur náð stærstum hluta borgarinnar Luhansk úr höndum uppreisnarmanna en harðir bardagar geisuðu í borginni í gær.

Uppreisnarmenn hafa misst tökin á stóru landsvæði á undanförnum vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×