Glamour

Push-up brjóstahaldarinn kemst aftur í tísku

Ritstjórn skrifar
Push-up brjóstarhaldarinn er fastagestur á Victoria's Secret sýningunni.
Push-up brjóstarhaldarinn er fastagestur á Victoria's Secret sýningunni. Mynd/Getty
Samkvæmt Sarah Shatton sem er yfirhönnuður lúxus nærfatafyrirtækisins Agent Povocateur mun push-up brjóstarhaldarinn verða með endurkomu árið 2017. Hún segir að tíundi áratugurinn sé áhrifamikill í tískuheiminum í dag og að push-up brjóstarhaldarinn muni komast í tísku eins og hvað annað. 

Trendið mun þó ekki verða eins og það var fyrir yfir 15 árum enda hafa tímarnir breyst. Á þeim tíma var Wonderbra vinsælasti brjóstarhaldarinn í heiminum en í dag eru sífellt fleiri konur semkjósa að nota ekki brjóstarhaldara eða nota þá án þess að vera með vír undir brjóstunum. 

Sarah segir að líklega verðiað teljast að push-up trendið fái nýtt snið þar sem blúndan verði meira í aðalhlutverki. Sniðið verði einnig meira "balconette" heldur en klassíska push-up sniðið. 






×