Handbolti

Puscas með Haukum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Haukar
Haukar hafa gengið frá samningum við nýjan markvörð fyrir komandi átök í Olísdeild kvenna.

Haukar hafa samið við rúmenska markvörðinn Madalinu Puscas og mun hún spila með liðinu í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð.

Puscas er 22 ára gömul og var þriðji markvörður í HCM Baia Mare sem varð rúmenskur meistari í vor. Samningurinn gildir til eins árs.

Haukar eru með ungt og efnilegt lið og komust til að mynda í undanúrslit bikarkeppninnar. Liðið hafnaði í sjöunda sæti Olísdeildarinnar í vor og tapaði fyrir Val í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×