Viðskipti erlent

Pundið styrkist vegna óvissu um Brexit

Heimir Már Pétursson skrifar
Liam Fox viðskiptaráðherra Bretlands segir stefnu ríkisstjórnarinnar óbreytta.
Liam Fox viðskiptaráðherra Bretlands segir stefnu ríkisstjórnarinnar óbreytta. Vísir/AFP
Úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu er í uppnámi og ríkisstjórn landsins hefur orðið fyrir áfalli eftir að dómstóll á Englandi úrskurðaði í dag að breska þingið verði að samþykkja úrsögnina. Þetta getur valdið miklum töfum á úrsögn Breta úr Evrópusambandinu.

Úrskurður Hæstaréttar Englands er talið vera áfall fyrir Theresu May forsætisráðherra Bretlands en ríkisstjórn hennar hafði stefnt að því að virkja 50. grein Lissabonsáttmála um úrsögn úr Evrópusambandinu í mars á næsta ári. Þar með hæfist tveggja ára úrsagnarferli Breta úr sambandinu.

Ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að áfrýja úrskurðinum til Yfirréttar Bretlands en málsmeðferðin þar gæti tekið langan tíma. Liam Fox viðskiptaráðherra Bretlands segir stefnu ríkisstjórnarinnar óbreytta.

„Ríkisstjórn er staðráðin í að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsluna um úrsögn frá því í júní. Þessi úrskurður vekur áríðandi og flókin lögfræðileg álitaefni sem er rétt að við skoðum vandlega áður en við ákveðum hvernig staðið verður að úrsögninni,“ sagði Fox á breska þinginu í dag.

Niðurstaða Hæstaréttar Englands er mikill sigur fyrir Gina Miller, frumherja og fjárfesti,  sem farið hefur fyrir hópi þeirra sem krefjast þess að úrsögnin sé rædd við Skota,  Walesbúa og stjórnvöld á Norður Írlandi og að breska þingið taki úrsögnina fyrir og greiði um hana atkvæði. Annað væri brot á stjórnarskrá Bretlands. Ríkisstjórnin hefur hins vegar vísað til alda gamlar konunglegrar tilskipunar um að ríkisstjórnin geti gert og slitið alþjóðlegum samningum.

Gina Miller segir úrskurðinn mikinn sigur.

„Þetta snýst um að úrsögnin verði byggð á eins traustum grunni og hægt er. Þetta snýst ekki um ákvörðun ríkisstjórnar um að vera eða vera ekki í Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin hefur lagt fram sína áætlun. Þetta lýtur að ferli ekki pólitík,“ sagði Miller eftir að úrskurðinn var kveðinn upp.

David Green lögmaður þeirra sem kærðu úrsagnarferlið til Hæstaréttar Englands segist aldrei hafa dregið vilja Breta í þjóðaratkvæðagreiðslunni um úrsögn í júní í efa. Hann hafi sjálfur greitt atkvæði með úrsögn til að færa vald frá Evrópu til breska þingsins.

„En það hvarflaði ekki að mér að ríkisstjórnin gæti sniðgengið þingið og þannig tekið lagalegan rétt af mér án þess að þingið yrði haft með í ráðum,“ sagði Green. Úrskurðurinn fæli því í sér mikinn sigur fyrir fullveldi þingsins í Bretlandi.

Pundið styrktist aðeins í dag eftir að úrskurðurinn lá fyrir en víst er að önnur ríki Evrópusambandsins eru farin bera í víurnar við fólk og fyrirtæki í Bretlandi. Forsætisráðherra Frakklands hefur til að mynda stofnað átaksverkefni til að vekja athygli á París. Ross MacInnes sérlegur sendiherra verkefnisins og sendinefnd hans voru með kynningu í Lundúnum í dag.

„Við erum hér til að mæla fyrir okkar möguleikum, til að sýna fram á hvað París hefur upp á að bjóða. Sem er stórt hagkerfi, raunverulegt hagkerfi, vistkerfi fólks sem er samkeppnishæft, vel menntað og búið þeim hæfileikum sem hafa gert Lundúnir að leiðandi fjármálamiðstöð,“ sagði MacInnes.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×