Viðskipti erlent

Pundið áfram í sögulegri lægð

Sæunn Gísladóttir skrifar
Markaðurinn bregst mjög illa við tíðindum um væntanlegt brotthvarf Breta úr ESB
Markaðurinn bregst mjög illa við tíðindum um væntanlegt brotthvarf Breta úr ESB Vísir/Getty
Gengi hlutabréfa á breskum hlutabréfamarkaði hefur hrunið í morgun, rétt eins og á föstudaginn. Þetta gerist í kjölfar niðurstöðu Brexit-kosninganna á fimmtudaginn þar sem kosið var að Bretland myndi yfirgefa Evrópusambandið.

Í morgun var gengi breska pundsins 1.327 dollarar, sem er litlu hærra en það var á föstudaginn þegar það hafði ekki verið lægra í 31 ár.

Vextir á tíu ára ríkisskuldabréfum lækkuðu einnig og voru undir eitt prósent í fyrsta sinn. Hlutabréfamarkaðurinn hefur sem fyrr segir tekið dýfu og lækkuðu hlutabréf í flugfélaginu easyJet um rúmlega 19 prósent í morgun eftir að tilkynnt var um lægri afkomuspá í kjölfar Brexit-kosninganna. 

FTSE 100 vísitalan sem mælir stærstu fyrirtæki Bretlands lækkaði um 1,63 prósent í morgun og FTSE 250 sem nær til fleiri fyrirtækja sem starfa mestmegnis á breskum markaði um rúmlega fimm prósent. 


Tengdar fréttir

Reyna að koma í veg fyrir Brexit

Milljónir Breta krefjast annarra kosninga um áframhaldandi viðveru Bretlands í Evrópusambandinu. Æðsti ráðherra Skotlands íhugar að beita neitunarvaldi gegn Brexit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×