Bakþankar

Pulsur og lög

María Rún Bjarnadóttir skrifar
Tengdalangalangafi Kate Moss, Otto von Bismarck, sagði að lög væru eins og pulsur; það væri vissara að vita ekki hvernig þau eru búin til. Ég fullyrði ekkert um afstöðu pulsugerðarmanna, en hafandi reynslu af undirbúningi lagasetningar held ég að máltækið eigi sjaldan við á Íslandi.

Helgi Hrafn þingmaður afhjúpaði í nýlegu vídeói að mótmælendur nýrra útlendingalaga voru ekki alveg búnir að lesa innihaldslýsingu laganna. Mér virtist sem þeir skildu ekki alveg framleiðsluferlið á löggjöf heldur.

Á stjr.is eru heimasíður ráðuneyta. Þegar frumvörp eru á undirbúningsstigum eru þau oft kynnt og óskað eftir umsögnum til að breyta þeim eða bæta þau. Það er hægt að bregðast við því. Útlendingalögin hafa verið í vinnslu frá 2011 og um þau eru tugir tilkynninga, fundarboða og frétta á heimasíðu viðkomandi ráðuneytis. Það er hægt að mæta á fundi. Þegar frumvarp er lagt fram á Alþingi er svo hægt að senda viðkomandi þingnefnd formlega umsögn. Þetta er allt á Alþingi.is, sem er besta heimasíða á Íslandi þrátt fyrir að innihalda ýmislegt vafasamt efni.

Á Alþingisvefnum er líka frábær leitarvél og þegar rétt mál er fundið er ýtt á hnapp sem heitir ferill málsins. Þá er hægt að sjá ýtarlega innihaldslýsingu á lögum, lýsingu á framleiðsluferlinu og helstu breytingum sem uppskrift laganna hefur tekið.

Þessar ábendingar gagnast illa þeim sem tala fyrir skaðlegu innihaldi í lögum. Fyrir þá er líklega betra að fá sér bara pulsu á Austurvelli.






×