Fótbolti

PSG með þægilegan sigur á Inter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Paris Saint Germain vann þægilegan sigur, 3-1, á Inter Milan í Internationa Champions Cup mótinu í Oregon í Bandaríkjunum í kvöld.

Það var Serge Aurier sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir um stundarfjórðung. Leikmenn Inter Milan neituðu að gefast upp og náði Stevan Jovetic að jafna metin úr vítaspyrnu þegar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleiknum.

Staðan var 1-1 í hálfleik en Layvin Kurzawa skoraði stórbrotið mark, beint úr aukaspyrnu þegar hálftími var eftir af leiknum og síðan stuttu fyrir leikslok náði Serge Aurier að gulltryggja sigur PSG og kóróna frábæran leik sinn þegar hann skoraði þriðja mark liðsins með skalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×