Handbolti

PSG í góðri stöðu fyrir seinni leikinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paris Saint-Germain gerði góða ferð til Króatíu í dag og vann átta marka sigur, 20-28, á Zagreb í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Seinni leikurinn fer fram á sunnudaginn í næstu viku og það þarf mikið að gerast þá til að Zagreb komist áfram í undanúrslitin.

Mikkel Hansen var markahæstur í liði PSG í kvöld með níu mörk en Nikola Karabatic kom næstur með sex mörk. Róbert Gunnarsson kom ekkert við sögu hjá frönsku meisturunum.

Fyrr í dag unnu Aron Pálmarsson og félagar þriggja marka sigur, 26-29, á Vardar á útivelli.

Þá gerðu Flensburg og Kielce jafntefli, 28-28, í fyrri leik liðanna í Þýskalandi.

Holger Glandorf fór á kostum í liði Flensburg og skoraði 11 mörk en Ivan Cupic gerði fimm mörk fyrir pólsku meistarana.

Á morgun mætast svo Kiel og Barcelona í Sparkhassen Arena í Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×