Lífið

Prumpuhundur á ferð og flugi

Magnús Guðmundsson skrifar
Eiríkur og bróðir hans Bjartur ásamt hundunum Lukku og Glóa en þau eru samt ekki prumpuhundar.
Eiríkur og bróðir hans Bjartur ásamt hundunum Lukku og Glóa en þau eru samt ekki prumpuhundar. Visir/Ernir
Eiríkur Stefánsson fékk óvænta og skemmtilega sendingu frá Ameríku fyrr í sumar sem má rekja til flöskuskeytis sem hann sendi í sjóinn fyrir um ári.

„Mig langaði til þess að prófa að gera flöskuskeyti svo ég teiknaði mynd af prumpuhundi, en það er hundur sem flýgur með því að prumpa regnboga. Svo sendi ég skeytið í sjóinn í fyrra, þá var ég átta ára en alveg að verða níu, en núna er ég að verða tíu ára á mánudaginn. Í sumar kom svo póstkonan með sendingu sem var merkt til mömmu Eiríks og ég átti að opna þetta á afmælisdaginn en mér fannst þetta bara svo spennandi að ég gat ekki beðið.

Eiríkur með bókina um Prumpuhundinn,Visir/Ernir
Í pakkanum, sem var frá konu í Ameríku, var bæði bréf og líka alveg rosalega flott bók sem hún var búin að búa til. Þessi kona heitir Sarah Eriksen og hún var hérna á Íslandi til þess að læra um víkinga í Háskóla Íslands þegar hún fann flöskuskeytið mitt. Eftir að hún fann skeytið fór hún frá Íslandi og ferðaðist bæði um Evrópu og Ameríku og var alltaf með myndina af prumpuhundinum með sér. Bókin er um það ferðalag og er mjög flott og skemmtileg. 

Opna úr bókinni sem sýnir Prumpuhund á flugi yfir Ameríku.Visir/Ernir
Mér fannst rosalega gaman að fá senda svona flotta bók sem var búið að búa til bara handa mér og ég ætla að senda henni bréf og kannski eitthvað fleira skemmtilegt til þess að þakka henni fyrir.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×