Innlent

Próflaus ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Reykjanesbær
Reykjanesbær vísir/gva
Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær vegna ölvunaraksturs hafði aldrei öðlast ökuréttindi á Íslandi en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjunum.

Auk þess hafði hann verið sviptur ökuréttindum í heimalandi sínu vegna ölvunaraksturs. Þá var hann eftirlýstur vegna vararefsingar.

Tveir farþegar voru með manninum í bifreiðinni en þeir gátu ekki tekið við akstrinum vegna ölvunar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×