Glamour

Proenza Schouler sýndi í New York í seinasta skiptið

Ritstjórn skrifar
Hönnuðurnir pössuðu upp á að þessi seinasta sýning í New York væri eftirminnileg.
Hönnuðurnir pössuðu upp á að þessi seinasta sýning í New York væri eftirminnileg. Myndir/Getty
Bandaríska tískuhúsið Proenza Schouler sýndi sína seinustu fatalínu í New York í gær. Á seinasta ári var tekin ákvörðun um að í framtíðinni mundi merkið framsýna línur sínar í París. Sýningar Proenza Schouler hafa verið haldnar í New York seinasta áratuginn og var orðin ein af aðal sýningum tískuvikunnar þar í bæ. 

Í tilefni þessara tímamóta ákváðu hönnuðir Proenza Schouler að leita af innblæstri innan borgarmarkanna og tileinka haustlínunni New York. Eins og við mátti búast varð enginn fyrir vonbrigðum. Skemmtileg snið með kvenlegu ívafi verður áberandi hjá tískuhúsinu í haust. 






×