Erlent

Prinsinn synti þrjá kílómetra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Friðrik krónprins
Friðrik krónprins
Friðrik, krónprins Dana, hefur gaman af því að taka áskorunum. Það er nú sennilegast þess vegna sem hann ákvað að synda þrjá kílómetra í sænskri á á laugardaginn. Sundið tók 45 mínútur og fékk hann verðlaunapening eftir sundið.

Samkvæmt frásögn Danmarks Radio var prinsinn kampakátur eftir sundið. Áður en sundið hófst vildi hann þó ekkert segja til um hvaða tíma hann hygðist taka sér í að ljúka við sundið. „Ég er með persónuleg markmið en ég ætla ekki að segja hver þau eru,“ sagði prinsinn fyrir sundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×