Innlent

Prinsessan stór til landsins

Skemmtiferðaskipið Grand Princess kom til Akureyrar í gær og er væntanlegt til Reykjavíkur í dag. Grand Princess er stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til landsins en það kom hingað síðast árið 2004.



Skipið er 23. stærsta skemmtiferðaskip í heiminum, alls 108,806 brúttólestir, 290 metra langt og ristir átta metra. Farþegar Grand Princess eru 3.100 talsins og í áhöfn eru 1.100 manns. Skipið var tekið í notkun árið 1998 og er í eigu Carnival Cruises sem er stærsta skemmtiferðaskipafélag í heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×