Tónlist

Prince látinn 57 ára að aldri

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Prince Rogers Nelson, tónlistargoðið betur þekktur sem Prince, er látinn, 57 ára að aldri. Fannst hann látinn á heimili sínu Chanhassem í Minnesota í Bandaríkjunum. Bandaríska vefsíðan TMZ staðhæfir þetta og hefur það eftir heimildarmönnum sem tengjast Prince nánum böndum. Þá hefur fjölmiðlafulltrúi Prince staðfest andlát Prince við fréttastofu AP.

Dánarorsök er óþekkt en í síðustu viku þurfti flugmaður flugvélar sem Prince var farþegi í að nauðlenda svo koma mætti honum undir læknishendur. Fulltrúi Prince sagði að hann hefði verið með flensuna. Hann birtist þó á tónleikum daginn eftir.

Prince var bæði afkasta- og áhrifamikill listamaður. Hann gaf út alls 39 plötur, þar á meðal tvær á síðasta ári. Þekktasta verk hans er hinsvegar Purple Rain sem kom út árið 1984 ásamt samnefndri mynd. Hlaut Prince óskarsverðlaunin fyrir tónlistina í þeirri mynd auk þess sem að titillag plötunnar var útnefnt besta lag níunda áratugarins af tónlistarvefnum Pitchfork.

Prince var margverðlaunaður tónlistarmaður. Auk fyrrgreindra óskarsverðlauna vann hann alls til sjö Grammy-verðlauna en hann var tilnefndur 32 sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×